• Þökkum frábærar móttökur í forsölu, hægt er að panta spilið hér á vefnum
  • Hægt er að kaupa spilið á eftirfarandi stöðum:
    • Bókabúðin Laugavegi 51
    • 12 Tónar Skólavörðustíg 15
    • Dogma Laugavegi 30
    • Dótakistan Vestmannaeyjum
    • Fjarðarkaup Hafnarfirði
    • Gogogic skrifstofa Brautarholti 26
    • Herðubreið Barónstíg 27
    • Islandica - Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli
    • Nexus Hverfisgötu 103
    • Spilavinir Langholtsvegi 126
    • Hrannarbúðin Grundarfirði
    • Verslunin Sjávarborg Stykkishólmi
    • Öllum verslunum Office 1
  • Kreppuspilið byggir á einstökum atburðum í Íslandssögunni - því sem er að gerast hér og nú
  • Verðinu verður hefur verið stillt í hóf, aðeins kr. 3.990 enda um sannkallað Kreppuspil að ræða
  • Kreppuspilið er íslensk framleiðsla, frá A-Ö
  • Heildsala og pantanir: Gogogic skrifstofa, Brautarholti 26, mán - fös. S. 534 7700, lau - sun S. 856 1615

Kíktu endilega á Kreppuspilið á YouTube

Hver kannast ekki við það að vera alltaf í kreppu?

Þú kemur heim úr vinnunni, þú ert drulluþreyttur og nýbúinn að hlusta á vikulega ræðu forsætisráðherra. Þú hringir í nokkra vini. "Hvað segið þið um að taka smá snúning á spili?" Við kynnum til leiks Kreppuspilið! Magnað fjölskylduspil sem léttir lundina og lyftir andanum.


Kreppuspilið er íslensk hönnun og er framleitt á Íslandi af leikjafyrirtækinu Gogogic - www.gogogic.is

Leikreglur og reitir Kreppuspilsins

Takmark Kreppuspilsins er að verða fyrstur til þess að axla ábyrgð og segja af sér á stórum blaðamannafundi. Til þess að komast á blaðamannafundinn þurfa leikmenn að ná ákveðnum áföngum og aðföngum sem teljast nauðsynlegir til að undirbúa sig fyrir fundinn. Bæði áfangar og aðföng eiga sér ákveðna reiti á spilaborðinu – átta alls – og á þeim þurfa leikmenn að lenda. Þannig þurfa leikmenn t.d. að eignast einkaþotu, gera kaupréttarsamning, stofna eignarhaldsfélag, missa sig í kaupæði o.s.frv.